Fundargerð 28. september 2009
Náttúrustofa Suðurlands – Stjórnarfundur haldinn 28. september 2009 kl. 17:00.
Mætt voru: Ólafur Lárusson, Rut Haraldsdóttir, Örn Hilmisson og Ingvar A. Sigurðsson, forstöðumaður.
1. mál: Farið yfir rekstraryfirlit það sem af er ári. Stefnt er að því að reksturinn haldi áætlun út árið og allar líkur á því að það gangi eftir.
2. mál: Farið yfir verkefni Náttúrustofunnar og gerð grein fyrir fræðigreinum sem birst hafa undir nafni Náttúrustofunnar undanfarið.
3. mál: Rætt um Ársþing og Ársfund Samtaka Náttúrustofa sem haldin verða í Sandgerði 6-8. október. Ingvar mun sækja þingið og fundinn og Hálfdán og Elínborg mæta á þingið.
4. mál. Stjórnin ákvað að halda fund þegar ljóst er hvert framlag ríkisins til Náttúrustofu Suðurlands verður fyrir árið 2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50
Örn Hilmisson
Ólafur Lárusson
Rut Haraldsdóttir
Ingvar A. Sigurðsson




