Stjórn Náttúrustofu Suðurlands
Náttúrustofa Suðurlands – Stjórnarfundur haldinn 10. september 2008 kl. 17:15.
Mættir voru: Ólafur Lárusson, Ingvar A. Sigurðsson, forstöðumaður, Rut Haraldsdóttir.
1. mál: Farið var yfir fjárhagsáætlun. Ingvar gerði grein fyrir innkomu styrkja og rekstri strofunnar það sem af er ári.
2. mál: Staða verkefna: Ingvar gerði grein fyrir verkefnum sumarsins; hann skýrði frá ferðum í Ingólfshöfða vegna rannsókna á varpi lundans þar. Ástandið þar reyndist vera miklu betra en hér á lundanum. Ingvar fór rannsóknarleiðangur í Morsárdal með Náttúrustofu Norðurlands Vestra.
3.mál: Ingvar gerði grein fyrir dagskrá Náttúrustofuþings sem verður í Stykkishólmi dagana 25. – 26. Sept. Ingvar mun fara auk þess sem Erpur Snær Hansen mun vera með erindi á þinginu um vöktun íslenskra sjófuglastofna: lundinn í Vestmannaeyjum.
4. mál: Gerð grein fyrir úttekt á starfsemi Náttúrustofa af Ingibjörgu Þórhallsdóttur. Skýrslan verður gerð endanleg síðar.
5. mál: Önnur mál.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00
Ólafur Lárusson
Rut Haraldsdóttir
Ingvar A. Sigurðsson




